top of page
Search

Er vinnan streituvaldur í sumarfríinu?

Það er nauðsynlegt að taka frí annað slagið, leika okkur og gera það sem nærir sálina. Þrátt fyrir það eru margir sem upplifa mikla streitu við það að fara í frí. Sumum finnst jafnvel einfaldara að kúpla sig ekki alveg út til að lenda ekki í of miklu álagi þegar þeir koma til baka. Það er líka staðreynd að mörg störf eru þess eðlis að erfitt er að stimpla sig alveg út en það er ekki þar með sagt að þú getir ekki haldið álaginu niðri og notið þess að vera í fríi. Það er hins vegar undir þér komið að stýra því hve mikil áhrif vinnan hefur á fríið þitt.


🌞 Undirbúðu fríið og forgangsraðaðu málum áður en þú ferð í frí.

🌞 Úthlutaðu verkefnum og gerðu aðra tímabundið ábyrga fyrir ákveðnum málum. Það léttir ekki aðeins á þér heldur stuðlar einnig að samvinnu og teymisábyrgð.

🌞 Miðlaðu fjarveru þinni til helstu aðila (yfirmanna, samstarfsaðila, viðskiptavina) og upplýstu þá um tengiliði á meðan þú ert í burtu.

🌞 Settu upp „out of office“ skilaboð á tölvupóstinn þinn og bentu á staðgengla á meðan þú ert í burtu.

🌞 Skoðað tölvupóstinn eða önnur samskiptaforrit einu sinni til tvisvar á dag á fyrirfram ákveðnum tímum og haltu þig svo frá þeim þess á milli. Ef allir vita hvernig þú ætlar að haga málum, hvernær þú kíkir á tölvupóstinn og svarar áríðandi fyrirspurnum o.s.frv. getur þú dregið úr truflunum og notið þess að vera í fríi.

🌞 Reyndu að stilla vinnutengdum símtölum í hóf og vísaðu málum frá þér til staðgengla eins mikið og mögulegt er.

🌞 Leyfðu þér svo að vera í fríi. Þannig endurhleður þú batteríin og tryggir að þú komir aftur til vinnu endurnærð(ur) með fulla orku.


Að draga úr vinnutengdum samskiptum og skyldum á meðan þú ert í fríi er ekki kæruleysi eða að taka ekki ábyrgð - það sýnir gott fordæmi. Vinnan mun alltaf gera kröfur á þig og því meiri tíma sem þú veitir henni í fríinu því meiri tíma tekur hún frá þér. Stýrðu málum og stjórnaðu væntingum, þannig dregur þú úr streitu og nýtur frísins betur.



Fyrir spurningar, streituráðgjöf, streitumarkþjálfun, úrvinnslu streitu eða leiðir til að forðast streitu til framtíðar sendu mér fyrirspurn á streita@streita.is.

 
 
 

Comments


Streita og streitustjórnun

Stórhöfða 21, 2. hæð

110 Reykjavík

Sími: 778-0775 

Netfang: streita@streita.is

  • Facebook
  • Instagram
  • LinkedIn

Streita.is © 2024  |  Allur réttur áskilinn

BE Ráðgjöf ehf., kt: 631121-0710, VSK númer: 143045

bottom of page