top of page

Streitustjórnun

Hvað færð þú út úr ferlinu:

  • Þú kemst í betra jafnvægi.

  • Þú lærir að þekkja og skilja streitueinkennin þín.

  • Þú færð skýrari mynd af streituvöldum í lífi þínu og hvernig má vinna úr þeim.

  • Þú öðlast verkfæri og færni til að takast á við streitu.

  • Þú nærð tökum á streitustjórnun til framtíðar.

  • Þú færð einstaklingsmiðaða þjónustu út frá þínum aðstæðum.

Einstaklingsmiðuð úrvinnsla

Streitustjórnunin byggir á einstaklingsmiðuðu ferli þar sem fræðsla og úrvinnsla fara saman. Við skoðum streituvalda þína, orsakir þeirra og áhrif streitunnar á líf þitt - hvernig hún birtist og hvaða einkenni þú finnur fyrir.

Samhliða úrvinnslu leiði ég þig í gegnum ferli þar sem þú öðlast aukinn skilning, lærir að styrkja streituvarnir líkamans og færð verkfæri til að takast á við streitu. Markmiðið er að hjálpa þér að ná jafnvægi á ný og byggja upp varanlega færni til framtíðar.

Aðferðafræðin:

Vinnan byggir á þremur meginþáttum:

  1. Streitulosun – unnið er að því að róa streitukerfið og koma líkamanum í betra jafnvægi.

  2. Fræðsla og ráðgjöf - aukinn skilningur á streitu og áhrifum hennar.

  3. Persónuleg streituúrvinnsla - unnið úr þínum eigin streitutengdu áskorunum.

Vísindalega staðfest

Aðferðafræðin hefur verið prófuð vísindalega með góðum árangri í COPESTRESS rannsókninni sem leidd var af Dr. Bo Netterstrøm við Bispebjerg sjúkrahúsið í Kaupmannahöfn. Niðurstöður sýndu góðan árangur, meðal annars að þátttakendur náðu betri tökum á streitu og að þeir sem voru frá vinnu vegna streitu sneru fyrr til starfa.

Fyrirkomulag

Boðið er upp á einkafundi á stofu eða í gegnum fjarfund. Fjarfundir fara fram í gegnum Kara Connect, öruggt samskiptakerfi sem uppfyllir kröfur landlæknis.

Pantaðu tíma og fáðu stuðning til að ná tökum á streitunni.

Streitustjórnun

Streituráðgjöf

Einstaklingar:

Streituráðgjöf er fyrst og fremst fræðsla þar sem við skoðum stöðuna þína og hvernig streitan birtist í daglegu lífi. Þú færð skýra mynd af streituviðbrögðum líkamans, hvernig þau virka og hvaða áhrif þau geta haft til lengri tíma. Jafnframt færðu leiðsögn um hvernig þú getur unnið með streituna þína með það að markmiði að ná betra jafnvægi.
 

Fyrirkomulag:

Boðið er upp á einkafundi á stofu eða í gegnum fjarfund. Fjarfundir fara fram í gegnum Kara Connect, öruggt samskiptakerfi sem uppfyllir kröfur landlæknis.

Pantaðu tíma og fáðu stuðning til að ná tökum á streitunni.

Streituráðgjöf

Fyrirlestrar og vinnustofur

Fyrirlestrar og vinnustofur eru sérsniðnar að þörfum hvers hóps eða fyrirtækis og miða að því að auka skilning á streitu, efla streitustjórnun og styðja við betra jafnvægi.

Dæmi um efni:

  • Streita og áhrif hennar á líðan og starfsgetu

  • Streituviðbrögð líkamans og hvernig má bregðast við þeim

  • Streita í starfi og leiðir til að draga úr álagi

  • Streita og hlutverk stjórnenda í að styðja starfsfólk


Fyrir nánari upplýsingar er velkomið að hafa samband á streita@streita.is 

Fyrirlestrar og vinnustofur

Námskeið

Unnið er að undirbúningi námskeiða um streitu og streitustjórnun. Fyrir nánari upplýsingar er velkomið að hafa samband á streita@streita.is.

Námskeið

Viltu fá nánari upplýsingar?

Settu inn nafn, símanúmer og netfang og ég hef samband við fyrsta tækifæri.

Takk fyrir að hafa samband

Streita og streitustjórnun

Stórhöfða 21, 2. hæð

110 Reykjavík

Sími: 778-0775 

Netfang: streita@streita.is

  • Facebook
  • Instagram
  • LinkedIn

Streita.is © 2024  |  Allur réttur áskilinn

BE Ráðgjöf ehf., kt: 631121-0710, VSK númer: 143045

bottom of page