top of page

Náðu tökum á streitunni

Bára Einarsdóttir streituráðgjafi og streitumarkþjálfi
Hjá Streitu og streitustjórnun færðu ráðgjöf, fræðslu og stuðning sem hjálpar þér að ná tökum á streitu og bæta líðan þína.

Boðið er upp á streituráðgjöf og einstaklingsmiðaða vinnu fyrir þá sem vilja ná betri stjórn á streitu og finna leiðir til að ná jafnvægi á ný. Einnig eru í boði fyrirlestrar, vinnustofur og námskeið fyrir fyrirtæki og hópa sem vilja efla streituvitund og bæta streitustjórnun á vinnustöðum.
Unnið er eftir vísindalega rannsökuðum og sannreyndum aðferðum í streitustjórnun og úrvinnslu streitu.

Bára Einarsdóttir, streituráðgjafi, stendur að baki fyrirtækinu sem vinnur með einstaklingum og hópum til að hjálpa þeim að vinna sig út úr streitu, endurheimta jafnvægi og byggja upp varanlega færni til að takast á við streitu til framtíðar.
Streituráðgjöf, Streitumarkþjálfun, Fyrirlestrar og vinnustofur, Námskeið

Streitustjórnun

Fyrir þig sem vilt vinna þig út úr streitu og ná varanlegu jafnvægi.

Einstaklingsmiðað ferli þar sem við vinnum saman að því að skilja streituna þína, draga úr áhrifum hennar og byggja upp varanlega færni til að takast á við streitu.

Streituráðgjöf, Streitumarkþjálfun, Fyrirlestrar og vinnustofur, Námskeið

Streituráðgjöf

Fyrir þig sem vilt skilja streituna og fá leiðsögn.

Ráðgjöf fyrir einstaklinga með áherslu á fræðslu um streitu og streituviðbrögð líkamans, áhrif þeirra til skemmri og lengri tíma ásamt leiðum til úrbóta.

Streituráðgjöf, Streitumarkþjálfun, Fyrirlestrar og vinnustofur, Námskeið

Fyrirlestrar og vinnustofur

Fyrir hópa sem vilja auka skilning á streitu og efla streitustjórnun.

Sérsniðin fræðsla, fyrirlestrar og vinnustofur um streitu, streituúrvinnslu og streitustjórnun fyrir fyrirtæki og hópa þar sem tekið er mið af þörfum viðskiptavina hverju sinni.​​

Streituráðgjöf, Streitumarkþjálfun, Fyrirlestrar og vinnustofur, Námskeið

Námskeið

Hagnýt námskeið fyrir einstaklinga og hópa.

Reglulega er boðið upp á námskeið tengd streitu, streituúrvinnslu, streitustjórnun og hvernig ná má tökum á streitu til framtíðar. Einnig er hægt að fá sérsniðin námskeið fyrir fyrirtæki og hópa.​​​

Svanberg Halldórsson

“Þvílík lukka að hafa fengið tækifæri í gegnum vinnuna til þess að þiggja streituráðgjöf frá Báru. Hún hjálpaði mér mjög mikið.
 
Persónuleg og góð nálgun.
 
Ég mæli svo sannarlega með streitu-námskeiðinu hjá Báru.
Takk fyrir mig!"

Ingibjörg Guðlaug Jónsdóttir, mannauðsstjóri

"Streituráðgjöfin hjá Báru hjálpaði mér að ná fókus og setja mér framtíðar markmið. Ég fékk fullt af verkfærum til að nota í daglegu lífi til að draga úr streitu.
 
Bára er ótrúlega hvetjandi, skemmtileg og frábær markþjálfi og stjórnendaráðgjafi.
Ég mæli 100% með Báru!"

Ríkey Eiríksdóttir

“Bára er ótrúleg, hún veitti mér þau bjargráð sem ég þurfti á minni vegferð gegn streitu í lífi mínu. Ég fékk fullt af tólum, verkefnum og ráðum hjá henni til þess að draga úr streitu.

 

Bára er persónuleg, hlý, fagleg og kann sitt fag.
 
Ég mæli eindregið með streitu-námskeiðinu hjá Báru.”

Streita og streitustjórnun

Stórhöfða 21, 2. hæð

110 Reykjavík

Sími: 778-0775 

Netfang: streita@streita.is

  • Facebook
  • Instagram
  • LinkedIn

Streita.is © 2024  |  Allur réttur áskilinn

BE Ráðgjöf ehf., kt: 631121-0710, VSK númer: 143045

bottom of page